Vandað handbragð
Við ræðum verklag, berum saman lausnir og gefum okkur tíma til að sýna hvernig vel unnið verk lítur út.

Benchmark Genetics Iceland
Meistarafélag viðhaldsdeildar er vettvangur okkar sem höldum stöðvunum gangandi og kennum hvert öðru handbragðið.
Tilgangur félagsins
Góð vinnubrögð verða til á verkstæðinu. Félagið gefur okkur tíma og rúm til að bera saman bækur og læra hvert af öðru.
Við ræðum verklag, berum saman lausnir og gefum okkur tíma til að sýna hvernig vel unnið verk lítur út.
Við komum reynslunni á blað. Þannig getur hugmynd frá einni vakt nýst næsta félaga sem stendur frammi fyrir svipuðu verki.
Við tökum vel á móti nýliðum, leitum ráða hjá reyndum félögum og finnum tilefni til að hittast utan amstursins.
Sameiginlegur grunnur
Hver hefur atkvæðisrétt? Hvernig er boðað til fundar? Í sáttmálanum eru leikreglur félagsins, allt frá inntöku nýs félaga til breytinga á samþykktum.
Lesa sáttmálannFyrir félagsmenn
Á innra svæðinu finnurðu verkstæðisbókina, fundargögnin og félagatalið. Nýir félagar fá persónulegt boð frá umsjónarmanni.